

Eftir mikla eftirvæntingu kynnum við með stolti nýjasta námskeiðið okkar í Make Up Stúdíó Hörpu Kára.
Ragna Hlín húðlæknir á Húðlæknastöðinni og Ale Sif okkar sameina krafta sína í námskeiði ætlað er þeim sem eru með rósroða.
Ale Sif hefur deilt sinni rósroða vegferð með fylgjendum sínum á Instagram og komst að því að mikil þörf væri á slíku námskeiði út frá fyrirspurnum, enda er rósroði einn algengasti húðsjúkdómurinn á Íslandi í dag.
Það kom ekki annað til greina en að fá fagaðila til liðs við okkur og erum við ótrúlega stoltar að fá dr. Rögnu Hlín inn í Make Up Stúdíó. Ragna Hlín hefur áralanga reynslu sem húðlæknir og hefur starfað sem slíkur frá árinu 2015.
Í upphafi námskeiðs mun Ragna Hlín halda fyrirlestur um rósroða og taka við spurningum. Í framhaldinu mun Ale Sif vera með sýnikennslu af dagförðun á módeli og sýna þær vörur sem hafa virkað fyrir hana.
Léttar veigar verða á boðstólnum, óáfengar og áfengar ásamt sætindum.
Allir sem mæta á námskeiðið fá goodie bag með vörum sem að henta vel fyrir rósroða.
Athugið að æskilegt er að vera með rósroða greiningu til þess að námskeiðið nýtist sem best. Ekki verður í boði að fá greiningu á staðnum.