top of page

UNGMENNANÁMSKEIÐ 12-17 ÁRA

NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST

24 Apríl 2024

Make-Up Studio Hörpu Kára býður upp á 10 vikna námskeið sérsniðið að ungmennum sem eru að stíga sín fyrstu skref þegar kemur að förðun og húðumhirðu. Þáttakendur taka einnig þátt í umræðutímum þar sem komið verður inn á kvíða og staðalímyndir tengdar samfélagsmiðlum með það að markmiði að styrkja sjálfsmyndina. Námskeiðið er tilvalið fyrir ungmenni á aldrinum 12-17 ára sem vilja öðlast réttu verkfærin frá fagfólki með heilbrigðum hætti. Sigrún Eyfjörð er umsjónarkennari Ungmennanámskeiðsins í Make-Up Studio Hörpu Kára. Sigrún er útskrifaður förðunarfræðingur frá Make-Up Studio Hörpu Kára og með BSc í Sálfræði. Hún hefur komið að kennslu á fjölmörgum ungmennanámskeiðum hjá Make-Up Studio og tók við umsjón þeirra vorið 2023.

 

Nemendur fá förðunarbókina Andlit, förðunarsvamp, snyrtitösku, rakakrem og burstasett með fjórum burstum að andvirði 21.000 kr. Nemendum býðst að versla allar vörur frá Make-Up Studio Hörpu Kára með 20% afslætti á meðan námskeiði stendur.

 

Námskeiðið fer fram í Make-Up Studio Hörpu Kára, Ármúla 17a á miðvikudögum kl. 16:00-17:15.

VERÐ: 75.000 kr.

ATH! Hægt er að nýta frístundastyk til þess að greiða fyrir námskeiðið.

Nemendur fá öll þau námsgögn sem þeir þurfa frá skólanum í öllum kennslutímum.

Á meðan á námskeiðinu stendur býðst nemendum aðgengi að veglegu vörusafni skólans þar sem þeir geta kynnst allavegana vörum við sitt hæfi.

258742157_4339893302786342_4758273222114287990_n.jpeg

KENNSLA

- Húðumhirðu
- Létta dagförðun
- Litahjólið og ýmisa tækni
- Minni háttar special effects áverka (tilvalið fyrir Halloween)
- Staðalímyndir og andleg heilsa. Sálfræðingur ræðir við þátttakendur.
- Unnið með sterka liti og blöndunartækni
- Umræðutími um heilbrigð vinasambönd. Helgi Ómars ræðir við þátttakendur.
- Allir tímar enda með förðunaræfingu

bottom of page